Örvitinn

Bifukollupar

Tók þessa mynd af bifukollum í garðinum hjá tengdó í dag. Notaði Sigma linsuna í macro ham, exif upplýsingarnar segja 195 mm, ég hélt þeir væru 200!

Prentaði myndina út í A4 og setti í stóran ramma, kemur mjög vel út. Hef alltof lítið gert af því að prenta út myndir og hengja upp á vegg. Þarf að gera meira af því fyrst maður er að dunda sér í þessu hobbíi.

myndir
Athugasemdir

Birgir Baldursson - 04/06/05 19:24 #

Litaðu aðra þeirra rauða og hina appelsínugula. Svo geturðu selt Mastercard myndina. :)

Matti Á. - 04/06/05 19:37 #

lol, ég verð að prófa að leika mér dálítið í photoshop :-)

Matti Á. - 04/06/05 19:50 #

Hvað segirðu um þetta? :-)

Ívar M. - 04/06/05 21:16 #

Þessi er flott hjá þér Matti.