Örvitinn

Gekk vel í morgun

Fór í bælið fyrir eitt í nótt - á fætur tíu mínútur yfir átta. Þurfti að mæta snemma með stelpurnar á leikskólann þar sem þau var að fara að sjá Brúðubílinn.

Komin helgi, þá fer þetta örugglega í rugl aftur :-)

dagbók
Athugasemdir

Gyða - 10/06/05 10:47 #

Þá er bara að fara eftir greininni sem þú vísaðir í um daginn og fara á fætur á skikkanlegum tíma um helgar líka!! Mér finnst svo notalegt að sitja á laugardagsmorgnum með tebolla og blaðið ein í friði. Skil ekki að þú getir ekki notið þess líka.

Hey hmm ef þú ferð á fætur líka og þá koma stelpurnar fljótlega á eftir ónei þá eru rólegu helgarmorgnarnir mínir farnir!! Er kannski ekki góð hugmynd :-Þ