Örvitinn

Fréttamenn

Hvaða fréttamaður spurði Davíð að því hver ráðherraskipan yrði fimm mínútum eftir að Davíð hafði sagt frá því?

Af hverju spurði hann ekki Davíð næst hvað hann ætlaði að taka sér fyrir hendur nú þegar hann væri að fara að hætta í pólitík?

Afskaplega aulalegt.

dagbók
Athugasemdir

Binni - 07/09/05 19:23 #

Þetta var Þór Jónsson hjá Stöð 2, en hann kom seint inn á fundinn. Heyrði ekki Davíð segja frá þessu. ;-)

Matti - 08/09/05 00:55 #

Það er ekki síður aulalegt að mæta of seint á svona fund :-)

Þór Jónsson - 04/11/05 22:43 #

Nei, þetta var í raun enn aulalegra! Ég var ekki seinn á fundinn heldur heyrði ekki í Davíð þar sem hljóðmaður slökkti óvart á hljóðkerfinu í eyranu á mér. Þess vegna missti ég af þessu - og til að geta tekið þátt í samtalinu mátti ég til að spyrja.

Matti - 05/11/05 20:08 #

Jæja, hvað svosem olli þessu var þetta ákaflega aulalegt þegar ég horfði á fréttamannafundinn í beinni á netinu :-)