Örvitinn

Stiklur

Ísskápalæknirinn mætti heim í dag og kíkti á ísskápinn, úrskurðaði að hann væri fársjúkur og það þyrfti að leggja hann inn. Í kvöld mætti svo bílstjóri og bar sjúklinginn út ásamt mér og Didda. Það gekk ágætlega en ég hlakka ekki til að bera fullfrískan ísskápinn inn aftur. Í eldhúsinu er tómarúm.

Horfði á fyrsta þátt í annarri seríu Lost í gærkvöldi. Er með þátt tvö líka, þarf að kíkja á hann. Lítið hægt að ræða um Lost án þess að skemma!

Þarf að kaupa mér ódýr svört jakkaföt á morgun. Skýst í Kringluna fyrir hádegi.

dagbók
Athugasemdir

Bragi - 04/10/05 08:27 #

Ég mæli með því að þú farir í Skeifuna og finnir þar í bláu húsunum outlet búðina frá Herragarðinum. Þar er að finna ódýr og góð föt sem manni getur hugnast að fara í oftar en bara einu sinni.

Matti - 04/10/05 08:29 #

Þakka þér fyrir, ég kíki þangað á eftir.