Örvitinn

Í dag:

Fengum Morgunblaðið í dag, fáum það næsta mánuðinn. Í blaðinu í dag voru tvö þúsund bæti eftir mig.

Ég vaknaði klukkan hálf sjö, fór í ræktina, hljóp og tognaði.

Keypti mér jakkaföt og bindi í Dressmann í Kringlunni, Herragarðs-outletið í Skeifunni opnaði of seint. Þjónustan í Dressmann í Kringlunni er afar góð. Jakkafötin eru fín.

Fór í jarðaför. KK og Ellý sungu fallega, presturinn klúðraði engu, Fóstbræður sungu vel. Borð svignuðu undan veitingum, eins og amma hefði viljað hafa það. Sá þar ýmsa ættingja sem ég hef ekki séð í mörg ár, ræddi ekki við marga og lítið við þá sem ég ræddi við.

Kíkti á Guru busters hjá Skeptíkus í kvöld, fyndin mynd. Mig langar að leigja minibus og hrópa "rökhyggjan lengi lifir" ásamt nokkrum Vantrúarseggjum.

Gyða er að horfa á Judging Amy í stofunni. Ég á erfitt með að vera í herberginu meðan horft er á þann þátt þannig að hún flúði upp og horfir á hann í ADSL sjónvarpi. Frekar horfi ég á Lögmál Murphy á RÚV.

dagbók
Athugasemdir

Már - 05/10/05 20:55 #

Fyndið þetta með ókeypis kynningaráskriftirnar. Þær fara alltaf í gang þegar blöðin fá njósnir af því að Gallup ætli í gang með stóra fjölmiðlakönnun. :-)

Matti - 06/10/05 09:22 #

það ætti að hluti af þessum fjölmiðlakönnunum, þ.e.a.s. að spyrja hvort fólk sé með kynningaráskrift.