Örvitinn

Gleraugu, er þetta ekki allt eins?

Prófaði gleraugu áðan, fékk þessi þrenn lánuð heim og tók sjálfsmyndir.

ég með gleraugu ég með gleraugu ég með gleraugu

Er þetta ekki allt eins? Eitthvað skárra en annað?

Annars vantar mig bara "tölvugleraugu" og því dálítið kjánalegt að pæla mikið í útlitinu, en ég er hégómagjarn og vill helst ekki líta mjög bjánalega út :-) Ég mun annars ekkert nota gleraugu nema þegar ég er í tölvunni eða að lesa.

Mikið er ég annars glaðlegur og vel rakaður á þessum myndum :-P

Þess má geta að þetta er skrifað með hægra auga í pung

14.12 23:55

Jæja, hér er mynd af mér með nýju gleraugun.
ég með gleraugu

dagbók
Athugasemdir

Jón Magnús - 13/12/05 18:39 #

Persónulega finnst mér þetta fínar umgjarðir allt saman, erfitt að gera upp á milli. Nr. 1 finnst mér samt best og þar sem ég þarf að horfa á þig hátt í 8 tíma á dag þá finnst mér að ég megi fá að ráða :D

Gulla - 13/12/05 19:06 #

Mér finnast #3 flottust... en það er bara mitt álit ;o)

darri - 13/12/05 19:38 #

Gleraugun á fyrstu myndinni fá mitt atkvæði.

Matti - 13/12/05 20:06 #

Álit annarra er einmitt það sem ég er að leita eftir. Rök Jóns eru góð, auðvitað ætti hann að ráða þessu útfrá umhverfissjónarmiðum :-)

sirry - 13/12/05 20:23 #

Færðu tvö fyrir ein ? annars eftir að hafa skoða þau öll og flett fram og til baka fannst mér þau öll flott. fyrst fannst mér nr 1 og nr 3 en eftir smá tíma fannst mér númer 2 soltið flott eftir að hafa fundist þau ekki koma til greyna. Jamm ég veit ég er erfið en sem sagt þú mátt ráða hehe.

Erna - 13/12/05 22:11 #

Númer eitt. Hin dómínera andlitið á þér meira, á meðan númer eitt falla meira bara svona inn í heildarsvipinn. Númer tvö og þrjú fá mann til að hugsa: Þarna er Matti með gleraugu, númer eitt fá mann til að hugsa: Af hverju er Matti svona alvarlegur á svipinn.

Sirrý - 13/12/05 23:41 #

Sammála Ernu um að gleraugun nr 2 segja þarna er Matti með gleraugu en þau segja líka þarna er matti flottur með gleraugu í stað þess að mynd 1 segir þarna er Matti eitthvað öðruvísi en hann er vanur að vera.

Matti - 13/12/05 23:48 #

Jæja, ég ætla með gleraugun í búðina í fyrramálið - biðja þau um að gefa mér nafnið/númerið á þessum fyrstu og kíkja svo í eina búð í viðbót.

Ég er hrifnastur af gleraugum nr. 1 en vil skoða aðeins meira. Get samt alls ekki beðið mikið lengur og verð að velja umgjör á morgun.

Regin - 14/12/05 11:16 #

Nr. 1 ekki spurning. Rosa glaðlegar myndir.

Erna - 14/12/05 14:36 #

Hey, til hamingju með fyrstu gleraugun! Þú verður eiginlega að taka mynd af þér með loka-eintakið þannig að við fáum að sjá þig með límmiðalaus gleraugu!

Matti - 14/12/05 15:12 #

Að sjálfsögðu set ég inn mynd :-) Raka mig jafnvel og hver veit nema ég brosi :-P

Davíð - 15/12/05 00:14 #

ahhhh of seinn að svara... Mér finnst þetta allt eins! En þó ekki frá því að þetta fari þér bara vel. En takk fyrir síðast... mikið er nú alltaf gaman að vera fullur með þér!

Matti - 15/12/05 00:16 #

Takk og sömuleiðis Davíð, sömuleiðis.

Einar Hreiðar - 15/12/05 19:33 #

Velkominn í hópinn...:)

Matti - 16/12/05 01:20 #

þakka þér - er svo ekki árshátíð eða eitthvað svoleiðis? Reyndar myndi ég ekki mæta með gleraugu þar sem ég nota þau bara í tölvunni og við lestur :-)