Örvitinn

Eiríkur heljarmenni

eiki_lyftir_stein.jpgRakst á þetta á vafri mínu áðan. Var að leita að öðru, því er nefnilega alveg stolið úr mér hvað yngsti strákurinn hans Eika heitir. Ég fann ekkert um það, en fann þessa skemmtilegu mynd.

Hann má eiga það hann Eiríkur Steinarsson að hann er hraustur. Hann sagði mér og Davíð frá þessum titli þegar við vorum í heimsókn um daginn en það er gaman að sjá mynd af þessu.

Er að klára að setja saman myndabókina þeirra (já ég veit, þetta er eilífðarverkefni) og uppgötvaði þessa mynd af þeim feðgum sem mér finnst ansi góð. Hún verður á heilsíðu í bókinni.

Ýmislegt
Athugasemdir

sirrý - 15/03/06 15:24 #

Hrafn viggó Eiríksson getur það ekki verið

Matti - 15/03/06 15:26 #

Jú, það passar.