Örvitinn

Rugl

Hér horfi ég á fótboltaleik, ruglaðan á Sýn. Hljóðið vantar en ég sakna þess ekki, hef náð ágætis tökum á að horfa á boltann ruglaðan.

Og þetta virðist virka, Liverpool komið í 2-0 eftir fjórar mínútur. Held að leikmenn Birmingham séu ekki að höndla ruglið.

dagbók
Athugasemdir

kiddi - 21/03/06 22:09 #

Legg til að þú gerir þetta oftar...

Matti - 21/03/06 23:53 #

Þetta hefur ýmsa kosti fram yfir reykmökkinn á Players!