Örvitinn

Það er ljótt að plata

Vantrú: Það er ljótt að plata

Í gær var fyrsti apríl. Sú hefð hefur myndast að á þeim degi megi plata náungann og reyna að láta hann hlaupa 1. apríl. Við á Vantrú tókum þátt í leiknum að þessu sinni og lugum því að lesendum að síðunni væri lokað vegna hótana frá lögfræðingum Þjóðkirkjunnar.

Sjálfur féll ég fyrir þessu á Liverpool blogginu. Enda finnst mér þetta illa gert, það er sumt sem maður gantast ekki með, eins og t.d. framherjamál Liverpool :-P

vísanir
Athugasemdir

djagger - 02/04/06 23:58 #

Þér tókst að gabba mig.

Ætli þetta hafi ekki verið eina gabbið sem ég féll fyrir. Var einmit að hugsa í gærkvöldi hvað ég var sár að hafa ekki fallið fyrir neinu gabbi þetta árið.

Vel gert ;)

Matti - 03/04/06 00:16 #

Æi, ég er enn með hálfgert samviskubit útaf þessu - skil þetta ekki :-)