Örvitinn

Golf í þriðja skipti

Palli undirbýr að slá úr glompuJæja, þá er ég búinn að fara þrisvar í golf. Fór í golf á Grindarvíkurvelli með vinnunni. Vorum níu mætt og spiluðum 12 holur í þremur hollum. Ég spilaði með Bjarka og Palla. Það verður bara að segjast eins og er, þeir eru dálítið miklu betri en ég í þessu sporti.

Mér gekk svosem ágætlega miðað við getu. Klúðraði náttúrulega helling af skotum en grísaðist stundum til að hitta boltann ágætlega. Hjá mér telst það góður árangur ef boltinn flýgur eitthvað áfram í fallegum boga, algengara er að hann skoppi eitthvað stutt áfram.

Ég er víst ekkert undrabarn í golfi

Tók afar fáar myndir, setti fjórar á vefinn [1, 2, 3, 4].

dagbók
Athugasemdir

Hjalti Rúnar - 20/07/06 17:53 #

Engin furða að þér hafi gengið illa, prófaðu næst að nota kúlu en ekki bolta ;)

Matti - 20/07/06 20:08 #

Það er alltaf sama smámunasemin í þér :-P