Örvitinn

Hinn kristilegi kærleikur

Skoðið þessa athugasemd sem barst á Vantrú (hún var færð á spjallið). Þetta er ekkert einsdæmi, reglulega fáum við svipaðar athugasemdir.

ef ég sæi ykkur myndi ég hlægja en um leið vorkenna ykkur ..fyrir að lifa svona ömurlegu lifi ..hlítur að vera ansi erfitt ;/ já ég myndi lika skera mig eins og þið hjótið að gera og ég myndi líka taka hass eða bara heróín ef ég væri þið ;/ eg myndi gera allt til að reyna að deyja !!

Það er vandlifað í veröldinni !

kristni
Athugasemdir

Eva - 19/01/07 08:45 #

Þessi athugasemd hreyfir svosem ekkert við mér, það er ótrúlegur fjöldi fávita í heiminum. Mér finnst hinsvear hálf sjokkerandi að nokkur maður skuli álíta þetta svaravert.

Matti - 19/01/07 08:54 #

Enda er athugasemdinni tæplega svarað, þó Hjalti geri tilraun til þess, enda erfitt að svara þessu efnislega :-)

Annars er okkar reynsla á Vantrú að ef við segjum ekkert kvartar fólk undan því.

Athugasemdin er sýnd sem dæmi um það sem reglulega berst okkur á Vantrú. Jú og til að benda á hvað fólk er klikkað.

Eyja - 19/01/07 10:16 #

Er þetta ekki eitthvert krakkagrey að baki þessari athugasemd? Varla skrifar fullorðin manneskja svona?

Matti - 19/01/07 10:19 #

Jú, eflaust er þetta bara barn. Í athugasemd á spjallinu lýsi ég því hvernig þessi manneskja rambar inn á vefinn (þú heldur að þú sért að skoða vefinn en vefurinn er í raun að skoða þig) og gruna því að barnið tengist ákveðnum presti, en það er náttúrulega bara tilgáta.