"Því miður er miðlæg bilun í sjónvarpsþjónustu símans, útsendingar á sjónvarpsrásum liggja niðri"
Tæknin maður, tæknin.
Það er augljóst hver er hættur að vinna hjá þeim. haha
Þetta er óþolandi
Ég er reyndar ekkert svo háður adsl-sjónvarpinu, enda bara með það í stofunni á miðhæðinni (og Liverpool leikurinn er annað kvöld) - en aftur á móti hefur adsl tenging símans líka verið að virka afar illa í nokkurn tíma. Ég þarf að endurræsa routerinn reglulega, annað hvert http request kemst ekki í gegn sem veldur því að það verður afar þreytandi að reyna að skoða síðu, við þurfum sífelt að refresha til að komast í gegn.
Bara nöldra nógu mikið í þeim fá afslátt ef maður getur ekki fengið þá þjónustu sem maður er að borga fyrir
lifi múskó
vertu ekki með þetta bögg út í sjónvarps símans. það er nú ekki eins og þessi tímon sé alltaf uppi?? líttu á björtu hliðarnar, uppfærslan var á meðan man utd var að spila.
Uppfæra routerinn í nýjasta firmware sem hægt er að sækja á heimasíðu Símans. Ef það virkar ekki þá skipta honum út í næstum verslun, þeir eru í blússandi ábyrgð.
Ég held ég hafi einhverntíman uppfært firmware í routernum, skoða það aftur á eftir.
Ætlið þið að segja mér bjarki og palli að þetta muni virka í kvöld? Er verið að setja nýja útgáfu í loftið án þess að prófa :-O
|
www.flickr.com
|