Við hjónin skruppum í Húsgagnahöllina fyrir hádegi keyptum nýtt hjónarúm. Fáum það sent heim í kvöld.
Þar sem nýja hjónarúmið er með rafmagnsgrind og þráðlausum fjarstýringum á það svo sannarlega heima í græjuflokknum.
Þetta var ekki alveg gefins en Óttar reddaði myndarlegum afslætti.
Það kemur bara í ljós hvernig við sofum á nýju græjunni.
Vonandi sofi þið vel í nótt.
Við sváfum afskaplega vel. Fengum reyndar rangar yfirdýnur, en það gerði ekkert til í nótt. Fer og skipti á eftir.
|
www.flickr.com
|