Þórður afi minn lenti í alvarlegu slysi í gær - varð undir lyftara!
Fætur fóru víst ansi illa, hann lærbrotnaði á öðrum fæti og holdið tættist verulega. Hann var í aðgerð frá fimm í gær til eitt í nótt og það á víst eftir að gera meira.
Ég veit ekki alveg hvernig þetta gerðist, en skilst á mömmu að hann hafi verið að stússast í lyftaranum sjálfur - það þurfti víst að lyfta þessum lyftara af honum með öðrum stærri.
Úfff en hræðilegt að heyra. Vona að þetta fari allt vel og afi þinn verði fljótur að ná sér.
Þetta er leitt að heyra. Vona að aðgerðirnar hafi allar gengið vel og að hann nái fullum bata. Kveðja að norðan.
hvernig heilsast honum í dag ?
Hann er kominn af gjörgæslu og á bæklunardeild. Er með mænudeifingu þannig að honum líður ágætlega.
Hefur eitthvað komið meira í ljós með hann Afa þinn ? Hræðilegt að lenda í svona slysi.
|
www.flickr.com
|