Afmælisbarn/veikindi dagsins


Gyða lætur skringilega
Gyða á afmæli í dag, er rétt rúmlega þrítug.

Við ætluðum út að borða í kvöld en þau plön hafa breyst þar sem Kolla er veik, komin með ælupest. Hún er dormandi í sófanum hliðina á mér, með skúringarfötuna innan færis.

Áróra Ósk var með smá hita í gærmorgun en hefur verið hress. Gunna amma þeirra ætlar að vera hjá þeim í dag.

01.11.2007 08:55 fjölskyldan
Athugasemdir

Sirrý - 01/11/07 09:02 #

Til hamingju með konuna þína vona að þið getið gert ykkur dagamun þrátt fyrir veikindi. Vona að stelpurnar hressist sem fyrst hér er einmitt ein með gubbupest gaman gaman.

Matti - 01/11/07 09:12 #

Ég kem við í Austurlandahraðlestinni í kvöld og kaupi eitthvað gott, svo opnum við hvítvínsflösku.

Sirrý - 01/11/07 11:52 #

Veistu hvað er rosalega gaman þegar maður á afmæli það er að bjóða vinum í mat frá austurlandahraðlestinni og veistu ég er til í að bjóða mig fram :C)

Gyða - 02/11/07 10:49 #

já fá vini heim í mat þar sem einn af heimilisfólkinu þarf reglulega að hlaupa frá matarborðinu til að æla mjög skemmtilegt matarboð :-O

En Kolla er betri núna allavegana.

Sirrý - 02/11/07 16:02 #

Já hvað barnafólk kippir sér ekki upp við það :C) Gott að heyra að hún sé betri. Þessi pest rann fjótt af Tinnu Björk og var hún alveg orðin hress í gærkvöldi og fór í skólan í morgun.




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)


Athugið að það getur tekið um mínútu að setja athugasemd inn, sýnið biðlund.
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com