Veikindi

Inga María er veik. Kvartaði undan hausverk í gærmorgun en faðir hennar fór samt með hana í skólann. Seinna um daginn sótti Gyða hana, þá var hún enn með hausverk og komin með góðan hita. Faðir hennar hafði ekki einu sinni mælt hana um morguninn. Seinnipartinn í gær var faðir Ingu Maríu með móral.

Hún var skárri í gærkvöldi og hitinn hafði gengið niður en í morgun var hitinn búinn að rjúka upp. Nú liggur hún í sófanum og er við það að sofna. Fékk verkjalyf í morgun en kvartaði enn undan hausverk nokkru síðar.

02.02.2008 09:25 fjölskyldan
Athugasemdir

Sirrý - 03/02/08 22:40 #

Hvernig er heilsan í dag ? Henni hefur örugglega ekki orðið neitt meint af því að fara í skólan en kannski liðið betur með að líða ílla heima :) Vona að hún sé orðin hress

Matti - 03/02/08 23:04 #

Hún var með rúmar 40° í gærkvöldi en með nokkrar komur í dag. Við ætlum að halda henni inni á morgun og vonum að hún nái að skemmta sér á öskudaginn.




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)


Athugið að það getur tekið um mínútu að setja athugasemd inn, sýnið biðlund.
Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com