Jarðaför Richard Dawkins - myndin mín!

Richard DawkinsHjalti benti mér á þessa færslu Pharyngula sem inniheldur myndband eftir einhverja geðsjúklina sem ætluðu að halda táknræna jarðaför Richard Dawkins í gær.

það sem vekur athygli mína er að innrammaða myndin af Richard Dawkins í myndbandinu er frá mér. Ég tók þessa mynd á trúleysisráðstefnunni 2006 og skellti á flickr. Var dálítið stoltur þegar hún rataði inn á Wikipedia síðuna um Dawkins en ég er ekki alveg jafn ánægður með þess "upphefð". Þeir vísa ekki á mig og brjóta því cc skilmálana - ætti ég að senda þeim reikning? :-)

02.02.2008 10:25 efahyggja
Athugasemdir

Lárus Viðar - 02/02/08 18:09 #

Var að detta inn af BloggGáttinni, sá fyrirsögnina og ég hélt að Dawkins væri látinn. Bannað að hræða menn svona á laugardögum. ;)

Matti - 02/02/08 19:53 #

Æ, já - fyrirgefðu :-)




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)

Mynd sem Kolla teiknaði af mér

Nýjar athugasemdir

www.flickr.com