Þetta hlýtur að vera djók, segið mér að þetta sé spaug. Þarna er Reynir að sýna fram á hvað málið er klikkað - ekki er honum alvara?
Er ekki við hæfi að rifja upp þennan leiðara Reynis þar sem hann talaði um mig og fleiri sem "hóp siðblindingja"?
Þetta er a.m.k. kyndug setning: "Sömu gerðar og Gaukur er Bubbi Morthens sem uppvís er af því að vega að æru fólks á vef sínum."
Hvort er Reynir blaðníðingur eða prentníðingur?
Það skortir löggjöf í landinu þar sem skilgreind verður ábyrgð þeirra sem hýsa gungurnar.
Reyni finnst þá væntanlega að Lög um rafræn viðskipti og aðra rafræna þjónustu [2002 nr. 30 16. apríl] dugi bara alls ekki?
Stundum finnst mér að í þessu landi búi tvær þjóðir. Annars vegar ég og mínir, hins vegar þeir sem halda að ekkert hafi gerst í heiminum síðan 1950.
Blekníðingur er kannski rétta orðið.
|
www.flickr.com
|