Örvitinn

Snoðaður rugludallur

SnoðaðurEftir ræktina í hádeginu kíkti ég við hjá rakaranum á jarðhæðinni og fékk hann til að snoða mig. Mikið óskaplega er það alltaf þægilegt!

Síðustu tvö skipti hafa rakararnir rætt við mig um Vantrú. Þekkja mig úr sjónvarpinu. Ég veit ekkert hvar ég hef þá, en báðir hafa þeir verið ánægðir með umræðuna - "hún á fullan rétt á sér". Ég forðast að ræða trúmál við ókunnuga.

Pólverjarnir skiptu um rúður í dag. Á meðan var ekki beinlínis vinnufriður.

Ég er dálítið stressaður fyrir fótboltaleik kvöldsins.

Ég ætlaði að skrifa hér blaður um umhverfismál en eyddi færslunni. Einu sinni var ég frekar skeptískur á að sýnt hefði verið fram á að hlýnun jarðar væri raunveruleg eða af mannavöldum. Í dag tel ég að sýnt hafi verið fram á það með nokkuð sannfærandi hætti. Það er svo allt önnur spurning hvort það borgar sig að fórna mjög miklu til að fresta því óumflýjanlega.

Verndari frelsisins starfar orðið sem blaðamaður á Viðskiptablaðinu. Mér finnst það bæði fyndið og sorglegt.

dagbók
Athugasemdir

Gunnar J Briem - 08/04/08 20:14 #

Ég forðast að ræða trúmál við ókunnuga.

Einhverjir gætu tekið þessa setningu úr samhengi og kvabbað í þér. :-)

En talandi um skeptík, varstu búinn að sjá þetta? Vonandi tekur þessi pilot flugið.

Arnold - 08/04/08 20:47 #

Þú ættir þá að vera frekar léttur núna kl 20:45 Liverpool 4 Arsenal 2! Hver hefði trúað þessu? Þetta Liverpool lið er ótrúlegt þegar kemur í Meistaradeildina :) Það bara gerist eitthvað :)

Matti - 08/04/08 21:27 #

Einhverjir gætu tekið þessa setningu úr samhengi og kvabbað í þér. :-)

Jamm, við skulum endurorða þetta. Ég forðast slíkt í raunheimum :-) (Uppfært: en ég er alveg tilbúin að ræða þessi mál ef aðrir hafa mikinn áhuga á því)

Vonandi tekur þessi pilot flugið.

Ég var ekki búinn að sjá þetta. Ég tek undir með þér, þetta er áhugavert.

Arnold, ég er ósköp kátur. En hvílíkt drama. Ég var niðurbrotinn þegar 7 mínútur voru eftir ef venjulegum leiktíma. Mínútu síðar er ég hoppandi kátur og fáeinum mínútum eftir það er ég að faðma einhvern gaur sem ég hef aldrei séð áður (hann faðmaði mig, ég gat ekki annað en faðmað hann á mót) :-)

Arnold - 08/04/08 21:32 #

"Mínútu síðar er ég hoppandi kátur og fáeinum mínútum eftir það er ég að faðma einhvern gaur sem ég hef aldrei séð áður"

Ég hef verið verið viðstaddur svona pöbbabullufótboltagláp og séð virðulega menn gera hluti sem þeir myndu aldrei gera við aðrar kringumstæður. Fullorðnir menn í slíkri geðshræringu er eitthvað sem allir verða að sjá, alla vega einu sinni :) he he he

Arnold - 09/04/08 01:31 #

Æi best að ég þegi bara

Matti - 09/04/08 08:23 #

Hvað? :-|

Arnold - 09/04/08 08:46 #

:O)