Örvitinn

Sjálfsfróun og krabbamein

Fyrst enginn annar ætlar að vísa á þetta er best að ég geri það.

Samkvæmt frétt BBC frá árinu 2003 minnkar sjálfsfróun líkur á krabbameini í blöðruhálskirtli.

Svo eru til trúarnöttarar sem fordæma rúnk! Biblían bannar það! (tja, Gvuð drepur þig ef sæðið fer til spillis)

Af hverju auglýsir Landlæknir ekki reglulega til að hvetja karlmenn til að rúnka sér?

[vid reddit]

klám vísanir
Athugasemdir

Kalli - 16/04/08 15:23 #

Ég held ég viti afhverju kristnir eru á móti sjálfsfróun (þótt ríkiskirkjan sé ein stærsta uppspretta af andlegu runki sem til er). Krabbamein er auðvitað verk guðs en sjálfsfróun er bara sjálfumgleði aumra manna.

Eða eitthvað þannig. Hver skilur guð og þá sem elta hann...

Erna - 16/04/08 16:13 #

Er rúnk ekki bara sóun á frumum sem hafa möguleika á því að verða að fullburða manneskjum?

Kalli - 16/04/08 16:16 #

Ég held að líkindareikningurinn sanni að kynmök séu það þá líka...

Magnús - 16/04/08 17:30 #

Ég held að sæðisfrumnaskortur sé ekki frumorsök þess að heimurinn er ekki fullur af hamingjusömum manneskjum. En ef sátt næst um að fullnýta hverja frumu skal ég svo sem skila mínu.

Hjörvar Pétursson - 16/04/08 18:03 #

Svo má ekki gleyma því að það er vísindalega sannað að sáðlát á 3-5 daga fresti eykur frjósemi karlmanna - þ.e. fjölda sáðfrumna við hvert sáðlát og hreyfigetu þeirra. Þannig að þeir sem eru að reyna að geta börn til að uppfylla jörðina Drottni til dýrðar en geta af einhverjum ástæðum ekki reynt að geta þau oftar en einu sinni í viku (t.d. ef þessir verðandi foreldrar hittast bara um helgar) ættu að líta á það sem guðlega skyldu sína að runka sér reglulega þess á milli - annað gengur klárlega í berhögg við boðið til Adams og Evu í Aldingarðinum. Þannig finnst mér augljóst að líta á það.

Lalli - 16/04/08 18:31 #

Ég tel að umskurður á karlmönnum ali af sér heilu herskarana af pirruðum köllum. Sjáið bara Bandaríkjamenn og múslima, afar árásargjarnir og haldnir miklu óþoli. Brundþrýstingurinn alveg að fara með þá.

Kalli - 16/04/08 18:55 #

Spurning hvort að við ættum að stofna góðgerðasamtök sem gefa sleipiefni til umskorinna karlmanna í herskáum löndum?

Matti - 17/04/08 09:54 #

Ég verð að játa að ég var búinn að skrifa þessa færslu þegar ég fattaði að fréttin var gömul :-)

Þetta er ansi gott uppnefni á dómara - en ég held það væri langsótt að nota þetta á kappleik :-)

Eva - 17/04/08 11:24 #

Ég mæli með samlesnum auglýsingum í RÚV.

-Mundirðu eftir að fróa þér í morgun? Landlæknir.

-Eiginkonur athugið: stöðugt riðlirí getur verndað mennina yðar frá krabbameini. Landlæknir.

Og svo mætti hefja þjóðarátak þar sem fyrirtæki lána slagorðin sín og vekja athygli á sjálfum sér í leiðinni, t.d:

-Runk er gott: Mjólkursamsalan. -Þú runkar ekki eftir á: Sjóvá. -Can´t beat the feeling: Runk.

Matti - 17/04/08 11:30 #

lol - dásamlegt :-)

Sindri Guðjónsson - 18/04/08 06:36 #

Sjálfsfróun er álitin synd eiginlega á þeim forsendum að hún sé svindl. Svo sagði Jesús í fjallræðunni, að hver sem horfir á konu í girndarhug drýgi hór í hjarta sínu. Þegar fólk fróar sér, er það oft gert meðan horft er á þar til gert myndefni, sem snýst um að horfa á konur í girndarhug, ellegar horfa menn á konur í huganum með ímyndunaraflinu, eða jafnvel gera eitthvað meira en bara að horfa. Jafn slæmt auðvitað. Nákvæmar og kristilegar lýsingar hjá mér. Svo er auðvitað ALLT kynlíf sem ekki er framkvæmt í hjónasæng synd - þ.á.m. sjálfsfróun.

Þessi hvítasunnuguðfræði var í boði Sindra en hægt er að fá nákvæmari upplýsingar, og meiri Biblíulegan grundvöll í síma 111-7777. (ég er þreyttur og steiktur og á örugglega eftir að sjá eftir þessu innleggi, þegar ég les það algáður á morgun)

Birgir Baldursson - 18/04/08 16:36 #

Ég verð að játa að ég var búinn að skrifa þessa færslu þegar ég fattaði að fréttin var gömul :-)

Enda varstu örugglega bara að skrifa þetta til að stuða alla þessa teprulegu presta og guðfræðinga sem lesa bloggið þitt. ;)