Örvitinn

Langa leiðin heim

Ég fór lengri leiðina heim og hjólaði upp meðfram Elliðaá, í kringum Efra Breiðholtið. Sýnist þetta vera um 9km leið, dálítið upp á móti en það verður ekki forðast þegar hjólað er í Breiðholtið. Ég fór þetta ekki mjög hratt en tók þó ágætlega á því á köflum.

Mikið óskaplega hef ég gott af þessu.

dagbók
Athugasemdir

Elías - 16/07/08 00:02 #

Mér finnst þetta skemmtileg leið, ég fer hana oft mér til gamans, enda á ég aldrei erindi austur fyrir Grensás.

Matti - 16/07/08 14:19 #

Ein ástæða þess að ég hjólaði þetta í rólegheitunum er að ég var að njóta umhverfisins sem er magnað. Þarna voru líka stangveiðimenn að draga fisk í land og fullt af fólki skokkandi.

Hin ástæðan er lélegt líkamsástand mitt en við ræðum það ekkert hér.