Örvitinn

Athugasemdir virka

Jæja, þá virka athugasemdir aftur. Eftir miklar tilraunin komst ég að því að ég átti bara eftir að haka við eitt box í MT.

Ekki er nóg með að athugasemdir virki heldur þarf fólk ekki að bíða í mínútu til að þær skili sér. Prófið bara!

Nú get ég dundað mér við að leysa önnur skemmtileg vandamál sem felast í því að setja upp nýjan vefþjón. T.d. er ég að fá villur þegar cron keyrir MT script hjá mér, held það sé eitthvað óskaplega ómerkilegt sem því veldur það virkar á Vantrú.

movable type
Athugasemdir

Matti - 14/09/08 12:05 #

Cron vandamál leyst, snerist log skrá sem cron átti að skrifa á.

Matti - 15/09/08 09:24 #

Prufa eftir smá eldveggsstillingar.