Inga María er sjö ára í dag.
Ég er uppgefinn. Hingað komu flestar stelpurnar í árgangnum (öllum var boðið). Þær voru dálítið hátt uppi til að byrja með en róuðust rétt áður en þær fóru heim.
Til hamingju með skvísuna!
Þakka þér. Ég var að setja inn myndir úr afmælinu.
Hvað meinar þú með allar stelpurnar í árganginum ? Er bara einn bekkur ? Ég myndi sko ekki nenna að hafa allan árganginn 3 bekkir.
Það eru tveir bekkir, átján stelpur (með Ingu Maríu). Við buðum öllum stelpunum en það urðu einhver afföll.
|
www.flickr.com
|