Örvitinn

Ómar spunakarl ælir

Einn fáráðlingur á moggablogginu tjáir sig um þulukrossinnn og greinina í DV.

Í DV í dag er formaður Vantrúar að væla yfir því að ein þulan á RÚV hafi verið með kross um hálsinn, í einhverri kynningu um daginn. Afsakið á meðan ég æli. Ótrúlegt hvað þessir menn nenna að eyða miklu púðri í að berjast gegn trúarsannfæringu meirihluta þjóðarinnar.

Get a life...

Hefði ekki verið gáfulegra fyrir kæruóða spunakarlinn og talsmann alþjóðlegs glæpagengislesa greinina áður en hann byrjaði að æla? Hvar í ósköpunum "væli" ég?

Svo koma trúarnöttarar á moggablogginu og taka undir ælu Ómars. Mér finnst það frekar skondið.

Það er ljóst að Ómar er annað hvort ólæs eða blindaður af fordómum í garð Vantrúar. Sem fyrrverandi blaðamaður á DV og Fréttablaðinu veit hann alveg hvernig svona greinar verða til.

vísanir
Athugasemdir

Matti - 26/11/08 19:19 #

Ómar segir í athugasemd.

En fyndið. Alveg var ég með það á 100% hreinu að Talíbanarnir myndu mæta í athugasemdakerfið með kökkinn í hálsinum. Gaman að því hvað sumir einstaklingar eru ótrúlega fyrirsjáanlegir...

Nú kallar hann mig Talibana í athugasemd. Hvernig er það, gæti ég ekki kært hann? Hann kærði jú mann fyrir að kalla sig rasista og ég veit ekki hvort er verra - að vera rasisti eða Talibani.

Er einhver lögfræðingur sem nennir að taka að sér að kæra Ómar :-)

Annars finnst mér alltaf jafn merkileg þessi taktík að skrifa eitthvað rugl um Vantrú eða mig og kvarta svo undan því þegar við svörum og kalla okkur öfgamenn fyrir að skrifa athugasemdir. Þarf maður ekki að vera verulega greindarskertur til að stunda svona taktík?

Annars hlýtur maður að velta því fyrir sér hver sé að borga Ómari fyrir að tala í þetta skipti.

Þórður Ingvarsson - 26/11/08 19:24 #

Er hann ekki sá fyrsti sem notar þessa taktík? Hann hlýtur að vera pottþétt sá fyrsti sem skrifar um Vantrú og fær svo athugasemdir frá okkur "Talíbönunum" - það hlýtur að vera. Er það ekki?

Ómar er nefnilega svo frumlegur, já, og fyndinn.

:gubb

Þórður Ingvarsson - 26/11/08 21:35 #

Mér skilst á nýjustu færslunni hans að hann hafi verið að rækta kannabis í bílskúrnum sínum og einhver hafi hringt á lögguna. Ég nennti ekkert að lesa smáatriðin, en þetta er áhyggjumál ef satt reynist.

Matti - 26/11/08 22:20 #

Ég er sammála þér, það er vissulega áhyggjuefni að spunakarlinn Ómar R. Valdimarsson sé tengdur framleiðslu fíkniefna og lögreglan sé komin í málið.

Matti - 26/11/08 23:16 #

Næstum jafn sniðugir og þú?

Óli Gneisti - 27/11/08 07:55 #

Alveg vissi maður að hann kæmi hérna og yrði með stæla.

Mummi - 27/11/08 09:30 #

En fyndið. Alveg var ég með það á 100% hreinu að Talíbaninn og rasistinn (oops, ég tek þetta til baka) myndi mæta í athugasemdakerfið með kökkinn í hálsinum. Gaman að því hvað sumir einstaklingar eru ótrúlega fyrirsjáanlegir...

Lalli - 28/11/08 08:13 #

Moggabloggið er svo bilað pleis.