Örvitinn

Og nú Kolla

Kolla með nýju húfunaRétt áðan ældi Kolla á gólfið í herberginu sínu þegar hún var að reyna að komast inn á baðherbergi. Svo kom enn stærri gusa í klósettið örskömmu síðar. Hún er semsagt komin með sömu pest og móðir hennar. Meira fjör í Bakkaseli.

Mér fannst hún vera örlítið slöpp á náttfatadiskóinu í kvöld, velti því fyrir mér á tímabili hvort hún væri að fá þessa pent en vonaði að hún myndi sleppa. Kolla ber sig líka yfirleitt afskaplega vel.

prívat
Athugasemdir

Jóhannes Proppé - 18/02/09 04:41 #

Ég mæli með kjötsúpu, þó þykktri með byggi í stað grjóna. Næring sem er merkilega fljót út í kerfið og byggið er ótrúlega gott í að róa magann í manni.

Segi ekki að þetta lækni eitt eða neitt, en frábært plasíbó.