Örvitinn

Fox "fréttastöðin"

Hef aðeins verið að horfa á Fox fréttastöðina undanfarin kvöld þar sem það er opið fyrir hana á Skjánum. Hrikalega er þetta klikkað lið!

Ótrúlega gaman að fylgjast með því hvernig þeir reyna að búa til æsifréttir úr engu. Ótrúlega sorglegt að hugsa til þess að fullt af fólki horfir á þetta gagnrýnislaust og heldur að þetta sé fréttastöð en ekki fasísk áróðursstöð.

Gafst samt upp á Bill O'Reilly í kvöld eftir korter. Sá náungi sprengir skalann.

Þó AMX sé að reyna eiga þeir enn dálítið í land þar til þeir ná Fox.

fjölmiðlar
Athugasemdir

Lárus Viðar - 09/04/09 05:03 #

Fox News er snilld! Er að verða ein af mínum uppáhaldsstöðvum. Skiptir engu hvenær stillt er yfir á FN, alltaf koma einhver gullkorn uppúr þessum elskum. Glenn Beck er nokkuð góður, fór að grenja um daginn vegna ástar sinnar á USA og hræðslu við sósíalisma.

Matti - 09/04/09 13:33 #

Ég var að missa Fox þannig að þetta voru stutt (en ánægjuleg) kynni.