Örvitinn

Dr. Gunni inniheldur 48/300

drgunni_inniheldur.pngÉg fékk áritað eintak nr. 48 af 300 inn um lúguna í fyrradag. Var að sjálfsögðu búinn að sækja lögin á síðunni og hlusta í tölvunni. Veit ekki einu sinni hvort diskurinn fer úr hulstrinu fyrst ég gat sótt lögin í góðum gæðum. Kannski spila ég hann í stofunni við eitthvað hátíðlegt tækifæri.

Dr. Gunni - inniheldur

"Taka í rass - þegar ég fæ það þá færðu smá dass" er frasi dagsins.

Tvímælalaust betri fjárfesting en hlutabréf í Exista.

tónlist
Athugasemdir

Davíð Torfi - 16/04/09 13:03 #

Ossobosssoo.... það er ekkert annað! Sniðugt!

Henrý Þór - 16/04/09 15:48 #

Góður diskur mar.

Ég á eintak 18/300.

Matti - 16/04/09 15:54 #

Ég er a.m.k. búinn að ákveða að vera góður við lifrarpulsubrúna hnakka.

Kalli - 17/04/09 15:39 #

Andsk... að Doktorinn skuli ekki bjóða upp á PayPal. Það er andskotans vesen að kaupa plötuna ef maður er erlendis og mig langar bara í fælana.

Matti - 17/04/09 15:41 #

Sæktur skrárnar og sendu honum sænskar krónur í umslagi.

Kalli - 17/04/09 21:56 #

Það var efst á lista hjá mér reyndar. Það að senda seðla í umslagi og með pósti er bara svo tuttugustu aldar. Hlóð reyndar niður skjölunum fyrr í dag og reikna fastlega með að Doktorinn rokki af mér sokkana núna og að ég sendi honum fljótlega gjaldeyri í umslagi.