Eldaði hálfmána í fyrsta skipti í kvöld. Svosem ekki mikið mál ef maður kann að búa til pítsur.
Bjó til fimm hálfmána. Þrjá með skinku (þrennskonar osti, pítsusósu og fullt af ferskri basiliku) og tvær sem voru auk þess með sveppum og papriku pepperoni handa mér og Áróru. Skellti ananas og eggi að auki í minn mána. Borðuðum svo ferskt spínat með.
Þetta vakti mikla lukku.
|
www.flickr.com
|