Ég var að hugsa um þáttinn Nýjustu tækni og vísindi í gærkvöld. Ég glápti alltaf á hann í gamla daga.
Það vantar sambærilegan þátt í sjónvarpið í dag. Þetta getur varla verið mjög dýrt sjónvarpsefni.
RÚV mætti gerast meira og minna heimildamyndarás.
Já, það er áhugaverð hugmynd. Mér hugnast samt ekki að það sé einokun á afþreyingarefni hér - en meðan Skjár1 og Stöð2 eru í samkeppni dugar það kannski.
Mætti a.m.k. setja þau skilyrði að RÚV haldi sig við vandað afþreyingarefni.
|
www.flickr.com
|