Örvitinn

Á móti straumnum

Á leið í bústað mættum við 1292 bílum (talið frá því við ókum úr Mosfellsbæ þar til við beygðum af þjóðveginum í Borgarfirði). Tókum ekki fram úr neinum, enginn tók fram úr okkur. Bíll nr. 666 var Porsche jeppi. Líka bíll númer 1200.

Afþreying í bílnum þarf ekki að vera flókin, þetta var stórskemmtilegur bíltúr.

dagbók
Athugasemdir

Walter - 06/07/09 09:39 #

PorSche maður! Porsche ;)

Matti - 06/07/09 11:00 #

Sorry maður :-)

Svo var talan reyndar líka vitlaus, lagaði það í leiðinni.