Örvitinn

Vöruúrvalið í Hagkaup

Eitthvað virðist vöruúrvalið í Hagkaup hafa minnkað því búið er að fjarlægja einn rekka úr búðinni í Skeifunni og Smáralind. Nú er ansi mikið pláss hjá sælgætinu.

Ég tók símamynd þegar ég verslaði í dag.

Hagkaup

Ýmislegt
Athugasemdir

Arnold - 09/10/09 07:33 #

Já og það eru stór svæði sem eru orðin ansi gisin í Smáralindinni t.d. þar sem húsgögnin eru/voru. Svæðið þar sem skólavörurnar voru í haust er alveg tómt. Þetta er athyglisvert.

Matti - 09/10/09 10:48 #

Það er dálítið sniðug leið að fjarlægja rekka, skárra en að hafa hálftómar hillur. Meira mál að fylla stór svæði í Smáralindinni.