Örvitinn

Dálítið pirrandi komment

what a beautiful photo, you must have a great camera! #

Ég tek þessu samt ekki mjög illa enda er ég græjufíkill. Það þarf samt meira en bara góða myndavél til að taka þokalegar myndir. Það sakar a.m.k. ekki að kunna á vélina og vita eitthvað út á hvað þetta gengur allt saman. Reyndar finnst mér þessi tiltekna mynd ekkert sérstök, þessi er betri.

what the duck

kvabb
Athugasemdir

Walter - 09/11/09 12:40 #

Maður fær aldrei svona komment þegar fólk er að hrósa því hvað börnin manns eru falleg :)

Matti - 09/11/09 12:45 #

Þú segir nokkuð :-)

Baddi - 10/11/09 21:16 #

Ég sé nú möguleika í þessu, næst þegar kvartað verður undan myndunum mínum þá bara segist ég ekki eiga betri myndavél en þetta ;)