Örvitinn

Veikindavakt dagsins

Inga María byrjaði að æla í nótt. Ég er því á veikindavaktinni. Hún er búin að æla einu sinni í morgun en annars hefur hún verið nokkuð hress. Svaf dálítið áðan og nú horfir hún á Stundina okkar.

fjölskyldan
Athugasemdir

Nonni - 14/12/09 17:34 #

Ha? Er önnur pest að ganga?

Matti - 15/12/09 07:54 #

Varla hægt að tala um það, Inga María var orðin hress seinni partinn í gær - fer í skólann í dag.