Örvitinn

Þögnin

Ég hef frá ýmsu að segja en nenni ekki að blogga. Langar að skrifa ógnarlanga færslu um Liverpool en kem mér ekki í verkið. Á eftir að ganga frá örstuttri veitingastaðarýni en klára ekki. Er með myndir í vélinni en flyt þær ekki í tölvuna. Glápi bara á sjónvarpið og hangi á netinu.

Voðalegt letikast er þetta.

dagbók
Athugasemdir

Kristján Atli - 17/01/10 22:36 #

ENDILEGA skrifaðu ógnarlanga færslu um Liverpool. Ég hlakka til að lesa hana, er ekki sammála þér um allt í þeim málum þessa dagana. Eða, hef ögn minni þolinmæði en þú (meiri en flestir, samt).

Getum birt hana á Kop.is líka ef þú vilt. Ef það skyldi gefa þér meiri hvatningu til að skrifa. :-)

Matti - 17/01/10 23:07 #

Ég ætla að vinna í þessu og svo megið þið vísa á hana ef þetta verður ekki algjört bull. Málið er bara að ég hef svo mikið að segja að ég get ekki byrjað :-) Ég mun vísa á greinar á Liverpool blogginu máli mínu til stuðnings :-)