Silfur dagsins
Ég er að spá í að gera tilraun og horfa á Silfrið í dag. Hver veit, kannski sé ég eitthvað fróðlegt innlegg í þjóðfélagsumræðuna. Uppfæri þessa færslu:
- Andrés Magnússon læknir
- Ágætis punktar inn á milli en frekar sundurlaust.
- Jón Ólafsson
- Góð umræða um skort á sjálfsgagnrýni. Ég þarf að lesa bókina.
- Ólafur Reynir Guðmundsson
- Ákvarðanartaka hjá hinu opinbera.
- Ég næ ekki alveg að halda meðvitund yfir þessari umfjöllun!
- "Aga, stefnufesti og nýjungagirni" - hvað af þessu passar ekki við hitt?
- Æi, í raun fannst mér þetta of grunnt og frasakennt en eflaust verður þetta fróðlegur fyrirlestur.
- Alex eitthvað
- Hvað gerir þetta fyrirtæki sem hann vinnur hjá?
- Á hvers vegum er hann hér á landi?
- Ah, við eigum að borga honum fyrir að sjá um þessi mál fyrir okkur.
- Margir ágætir punktar.
Þetta var bara nokkuð fróðlegur þáttur. Held að það megi fyrst og fremst þakka því að engir stjórnmálamenn komu nálægt honum.
Athugasemdir
Björn Friðgeir - 14/03/10 13:09 #
Noooooo. Don't do it! You mad impetuous fooooool!
Sindri G - 14/03/10 21:42 #
Sá brot af Alexhvaðhannnúheitir. Maður hefur heyrt hagfræði prófessora frá H.Í. segja að þeir þori ekki að hugsa þá hugsun til enda hvað myndi gerast ef AGS lánar okkur ekki pening. Á landinu yrði alls ekki búandi. Svo kemur þessi (og fleiri) og segja að hér verði ekki líft ef AGS lánar okkur, og betri væri að þeir lánuðu okkur ekkert. Hvernig á leikmaður að vita hverju hann á að trúa?