Örvitinn

Fótboltagláp

Skellti mér á Players í gærkvöldi og horfði á El Clásico eins og leikur Real Madrid og Barcelona er kallaður. Sá leikur endaði vel. Fólk einblínir á Messi en Xavi var maður leikins, lagði upp bæði mörkin og hefði átt fjórar stoðsendingar ef Messi hefði klárað dauðafæri.

Sit nú aftur á Players og glápi á Liverpool spila á móti Fulham.

Það verður bara að segja eins og er, spilamennskan er ekki alveg í sama gæðaklassa í þessum leik og í leiknum í gær. Það vantar eins og einn Xavi í lið Liverpool, já og kannski einn Messi líka.

boltinn