Örvitinn

Klósetti fargað

Áðan komst ég að því að það kostar 790 krónur að farga salerni hjá Sorpu. Ég sé svosem ekkert eftir þeim pening en skil ekki alveg af hverju maður þarf að borga fyrir að henda sumu en ekki öðru. Get skilið að greinarmunur sé gerður á einstaklingum og fyrirtækjum.

Við erum semsagt komin með nýtt klósett og vask á miðhæðina. Ekki nema fjögur ár síðan klósettið bilaði.

umhverfið
Athugasemdir

Þórður Ingvarsson - 05/06/10 12:05 #

Ég vill bara vera fyrstur til að óska þér innilega hamingju með þennan merka áfanga. Vonandi mun þetta nýja klósett færa þér hamingju, velsæld og gleði í framtíðinni og ég efast ekki eitt andartak um að það mun efalaust veita þér margar ánægjustundir.

Húrra!