Örvitinn

Afmælisbarn dagsins

Mynd systrunum af Stellu, Dóru og MöttuUnglambið hún móðir mín á afmæli í dag 10.10. Fæddist árið 1955 og er því 55 ára í dag. Flottar tölur.

Hún hélt afmælisboð í gær þar sem boðið var upp á kjúklingasúpu og kökur.

Í kvöld fara hjónin út að borða í boði barna, tengdabarns og barnabarna (hmm, dálítið minningargreinalegt). Ég treysti því að kokkar og þjónar á Einari Ben hafi allt fullkomið.

Á myndinni er móðir mín vinstra megin, Halldóra í miðið og Matta hægra megin, í sömu röð og á myndinni sem þær halda á.

fjölskyldan
Athugasemdir

Kristinn - 10/10/10 15:01 #

Til hamningju með móður þína. Mamma mín á einmitt afmæli í dag líka. Fædd '59 :-)

Matti - 10/10/10 15:58 #

Til hamingju með móður þína sömuleiðis :-)

Siggi Óla - 11/10/10 04:49 #

Til hamingju með móður þína. Systir mín á einmitt afmæli líka 10.10. og fædd ´85 þannig að hún varð 25 :)