Örvitinn

Hjólaði!

Þar sem spáin var hagstæð (ekki rigning) hjólaði ég í vinnuna. Verð að játa að ég nennti ekki af stað í morgun. GPS-ið fór ekki strax í gang þannig upphaf ferðar sést ekki. Það verður stuð að hjóla heim! Markmiðið er að hjóla flesta daga vikunnar - svo lengi sem það verður þurrt.


View Vinnan in a larger map

Uppfært
Fór lengri leiðina heim. Fínt að hjóla gegnum Fossvoginn.


View Heim in a larger map

dagbók
Athugasemdir

óli - 22/07/13 12:04 #

Mér þykir þægilegra að fara Fossvogsdalinn hina leiðina. Yfir göngubrúna til kanínubænda. Meira aflíðandi.

Matti - 22/07/13 14:01 #

Ég þarf að prófa þá leið - brekkan upp að kanínubændum er frekar leiðinleg.




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)