Örvitinn

Fantasy deildin

Nefndi í síðustu færslu að ég væri í 15 sæti í heiminum í Fantasy Premier League. Gærdagurinn gekk ágætlega, Agüero sem var fyrirliðinn minn stóð sig vel og þessa stundina er ég efstur á Íslandi og í þriðja sæti í heiminum.

Staðan í Fantasy deildinni

Mér finnst afar ósennilegt að ég haldi þessum dampi og verð því að stæra mig af stöðunni meðan ég get! Hef verið mjög heppinn með fyrirliða undanfarið og það hlýtur að koma að því að ég eigi slaka umferð.

boltinn
Athugasemdir

Jón Magnús - 28/11/13 11:56 #

Þú vilt passa þig að verða ekki eins og þessi gaur :) http://www.beefjam.com/?id=4059

Matti - 05/12/13 08:24 #

Hvað gerðist? Jú, ég þurfti að skutlast fram og til baka um bæinn endilangan eftir vinnu á þriðjudag og þegar ég settist niður til að breyta liðinu mínu (Oscar út, Hazard inn, Suárez sem fyrirliða) var ég fimm mínútum of seinn. Ég féll því ansi hratt niður :-) I'll be back!




ath. póstfangið birtist ekki á síðunni

má sleppa

(næstum öll html tög virka, einnig er hægt að nota Markdown rithátt)