Inga María ælir
Heldur betur ástand á heimilinu, Inga María er veik. Ældi tvisvar áðan hjá eyrnalækninum og svo einu sinni þegar við komum heim. Er að horfa á stubbana. Nei, hún er sofnuð í sófanum.
Ég er drulluslappur og var búinn að ákveða að taka mér veikindafrí á morgun. Við verðum saman heima á morgun að dunda okkur við stubbagláp.
Athugasemdir
Sævar Helgi - 15/03/05 18:13 #
Nú er tækifæri fyrir þig að biðja guð um lækningu.
Sirry - 15/03/05 21:57 #
Vona að henni batni sem fyrst ja og þér auðvitað líka. Baddi er fárveikur hér heima með ælupest ojjjj og daman eitthvað slöpp líka en vona að þau verði hressari á morgun.