Bifukollupar
Tók þessa mynd af bifukollum í garðinum hjá tengdó í dag. Notaði Sigma linsuna í macro ham, exif upplýsingarnar segja 195 mm, ég hélt þeir væru 200!
Prentaði myndina út í A4 og setti í stóran ramma, kemur mjög vel út. Hef alltof lítið gert af því að prenta út myndir og hengja upp á vegg. Þarf að gera meira af því fyrst maður er að dunda sér í þessu hobbíi.
Athugasemdir
Birgir Baldursson - 04/06/05 19:24 #
Litaðu aðra þeirra rauða og hina appelsínugula. Svo geturðu selt Mastercard myndina. :)
Birgir Baldursson - 04/06/05 20:50 #
Æði!
Ívar M. - 04/06/05 21:16 #
Þessi er flott hjá þér Matti.