Afmælishelgi og nýr sófi
Jæja, þá er þessari afmælishelgi lokið. Héldum barnaafmæli í gær og fullorðinsafmæli í dag. Þetta var ágæt törn, ekkert mjög mikið mál þar sem við fengum góða hjálp.
Í kvöld kíktum við svo til Davíðs sem var að sýna húsgögn og fjárfestum í sófa í sjónvarpsstofuna. Hann barst um tíu í kvöld, er gríðarlega stór og kemur vel út að okkar mati.
Er að vinna í myndum, skelli þeim inn rétt bráðum.
02:31
Búinn að setja inn myndir fyrir síðustu þrjá daga.
Athugasemdir
Sirrý - 09/01/06 11:54 #
Stór og flottur sófi :C) Kemur vel út en hvernig er það saknar þú ekki holunar þinnar :C)