Bingó og bústaður
Það skemmtilegasta við að halda bingó er fólkið sem ærist útaf þessum saklausa gjörningi. Að það skuli vera til fólk sem lætur það fara hrikalega í taugarnar á sér að við spilum bingó er yndislega fáránlegt :-)
Þetta eru ekki alvarleg mótmæli, við gerum þetta ekki í fýlu heldur með bros á vör.
Við erum komin í sumarbústaðinn og verðum þar fram á sunnudag. Mér tókst að tengja gemsann við ferðatölvuna með bluetooth. Ætla samt ekki að hanga á netinu! Ég myndi ekki blogga um bústaðaferð ef við værum ekki komin með öryggiskerfi frá Securitas.
Athugasemdir
Páskahérinn - 22/03/08 10:25 #
Ertu ekki með myndir frá bingóinu?