Píla dagsins
Ég, Jón Magnús og Kolli spiluðum fimm leiki í dag. Ég vann alla.
Það sem er skemmtilegt við þetta er að Jón Magnús og Kolli samgleðjast mér alltaf þegar ég vinn. Það er mikið um húrrahróp og fagnaðarópin heyrast um allt hús. Svo koma þeir í básinn minn og hrósa mér sérstaklega fyrir frammistöðuna.
Athugasemdir
Jón Magnús - 01/04/08 17:05 #
Það er búið að sprengja dekkin á bílnum þínum...
Jón Magnús - 01/04/08 17:14 #
Ég gruna að Kolli hafi farið "út að reykja" áðan og tekið með sér sveðjuna hans Arnars...
Jón Magnús - 02/04/08 13:53 #
Ég og Kolli sönnuðum í dag að þetta var bara heppni í gær! Vííí - óle óle óle óle....