Svoooona stór
Ráðstefnumyndin mín fór upp á vegg í höfuðstöðvunum í dag. Ég dró Jón Magnús fram til að taka mynd af mér með stykkinu.
Þetta er lang (lang lang) stærsta prentun af mynd eftir mig - næst stærsta er A4! Ég þarf að fara að drífa í að prenta út einhverjar myndir í þokkalegri stærð (samt ekki alveg svona stórar) og skella á veggi heima hjá mér.
Athugasemdir
Matti - 11/04/08 21:53 #
Ég veit það satt að segja ekki, en Bergur vildi meina að það hefði verið ansi ódýrt. Ég skal reyna að fá það á hreint hvað þetta kostaði.
Merkilegt hvað jpeg þjöppunin á þessari mynd af myndinni og mér fer illa með appelsínugula flötinn með hvítu stöfunum.
Uppfært: Ég skipti um mynd, hafi óvart vistað hana í of lágri upplausn og með of mikilli jpeg þjöppun úr DxO Optics.