Hjólaði (frekar stutt)
Ég sótti hjólið í morgun. Tók leigubíl í Faxafen og hjólaði þaðan í vinnuna. Þetta er ekki löng leið sem var heppilegt í fyrstu ferð. Hjólið virkaði vel Hjóla heim seinni partinn og um allan bæ næstu daga (ég lýg þessu). Ég vil því biðja ökumenn um að fara sérstaklega varlega, sér í lagi þegar þeir sjá spikaða hjólareiðakappa.
Þegar ég var að taka saman dótið í morgun fann ég húfuna mína. Mikið varð ég glaður, ég hélt hún væri glötuð í annað sinn.
Athugasemdir
Arnold - 13/05/08 13:32 #
Þú þarft að fá þér hjálm, húfa dugar ekki.