Framsóknar og vogunarsjóðir
Hvort ætli það sé verra fyrir Framsóknarflokkinn að vera tengdir við vogunarsjóði eða vogunarsjóði að vera tengdir við Framsókn? Hvort er þessi "leki" árás á Framsóknarflokkinn eða vogunarsjóði? Nógu slæmt orð var á vogunarsjóðum fyrir. Og Framsókn svosem líka.
Þetta þarf að fá á hreint. Ég veit nefnilega að ég á að froðufella af bræði en átta mig ekki á því hvert ég á að beini reiðinni.
Athugasemdir
Arnold - 11/10/09 18:44 #
Ég fylgist orðið svo lítið með. Hvað er í gangi þarna og hvaða fréttir eru þetta?
Tryggvi R. Jónsson - 11/10/09 19:05 #
Framsókn er pottþétt að koma illu orði á vogunarsjóðina.
Arnold - 11/10/09 20:03 #
Ok það hljómar töff :) Þetta eru alvöru gangsterar þessir nýframsóknarmenn. Ætla greinilega ekki að verða eftirbátar sumra þeirra eldri :)