Pestin komin
Jæja, þá er pestin væntanlega komin á þetta heimili. Inga María liggur sofandi í rúminu mínu, var með 39° hita rétt áðan. Kvartaði undan hausverk fyrr í dag og verkjum í augum þegar hún leit niður. Ég tók út hálsbólgu um daginn, er að vona að það hafi verið væg flensa.
Athugasemdir
Eva Mjöll - 18/10/09 21:58 #
Æ vonandi gengur þetta fljótt yfir hjá henni. Við erum komin með pestina til okkar, Ásta og ég búnar en Daníel er að klára. Sendum allavega batnaðarkveðjur héðan úr Kjósinni.