Klaufi, veikindi og afmælisbarn
Kolla er veik, var komin með hita í gærkvöldi, hefur kvartað undan kverkaskít síðustu daga. Gyða byrjar daginn heima, ég tek vaktina eftir hádegi.
Gyða ætlaði að skutla Ingu Maríu í skólann í morgun þar sem göngufélagarnir afboðuðu sig. Það gekk ekki þar sem ég er með bíllyklana hennar í vasanum. Gáfaður!
Inga María var vakin með söng í morgun. Fór í "The dog ate my homework" peysunni í skólann og var að bisast við að setja á sig hálsmen þegar ég smellti af henni mynd í morgun.
Ég setti nýja skrifborðsstólinn saman í gærkvöldi. Í dag eða kvöld þarf ég að koma skrifborðinu í rétt form. Inga María kom foreldrum sínum skemmtilega á óvart þegar hún pantaði skrifborð og stól í afmælisgjöf.
Sirry - 16/11/09 22:55 #
Til hamingju með stóru stelpuna, Vona að Kolla verði fljót að jafna sig. Elísa var lasin í gærkvöldi og ældi tvisvar en var hin hressasta í dag.
Sirrý